Tuesday, June 29, 2021

Þriðjudagur 29. júní 2021

Loksins er að hlýna, hitinn var áreiðanlega hátt í 20°C í dag, en nokkur gola (12-15m/sek). 

Við fórum á Miðhraun í gær, mánudag og gróðursettum allan daginn. 2 raðir eru komnar, eigum eftir einn legg, frá afleggjara og niður fyrir "raðhús". 



Þetta gekk vel, og um nóttina og í dag rigndi, svo þessu ætti að vera óhætt. 

Við byrjuðum á sunnudag að setja niður grænmeti í Hafnargerði, aldrei hafa plönturnar farið svona seint niður. Sem betur fer var ég ekki með mikið magn í ár.  




Og framhaldssagan af minkinum. Hann komst greinilega ekki út úr kofanum, þar lá hann dauður á sunnudag. Í dag fann ég svo dauðan minkaunga og  fór með hræin til rebba (við eigum stefnumótastað). Rebbi hafði þá sótt öll hænsnahræin. 





No comments:

Post a Comment

Blog Archive