Friday, April 29, 2016

Föstudagur 27. apríl 2016

Gott veður, 6-8°C,  N4, sólskin mestan hluta dagsins. Það hefur verið kalt í nokkra daga og næturfrost, en í dag hlýnað aftur. Fínt veður til þess að prikla. Við vorum búin að gera einn karm tilbúinn og við fórum með alla bakkana niðureftir, priklaði í eitt hólf og það næsta er tilbúið. Plönturnar eru ótrúlega sterklegar og fallegar, enda sáð mjög gisið. Það greinilega borgar sig. Það verður frekar lítið af matjurtum í sumar, nú hefur gróðurhúsabyggingin forgang.
  Halldór tók saman ónýt og brotin vörubretti og við fórum með fulla kerru í Sorpu. Erum að byrja að taka til áður en blái gámurinn verður fluttur. Halldór tjargaði hvíta gáminn þar sem hann lendir bak við þann bláa.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive