Hryssingsleg N-átt, 10-13 m, hiti um 10°C. Í dag settum við hurðirnar fyrir gróðurhúsið. Það gekk ágætlega, en Halldór þarf að laga eitt og annað.
Við settum dúk í skjóli við skjólbeltið og gróðursettum 5 eikur og 3 logalauf. Vorum búin að tæta skít og áburð saman við moldina. Allar eikurnar sem voru í pottum í karmi í vetur drápust. Þessar voru inni á Mógilsá og nú kemur í ljós hvort þær tóra. Þarna voru upphaflega 2 perutré sem nú eru dauð og hið besta skjól.
 |
| Hér erum við að máta plönturnar við dúkinn |
 |
| Búin að gróðursetja og fergja |
 |
| Vaxtartoppar á greni nálgast 40 cm. |
Grenið vex gríðarlega, enda er gott skjól þarna á bak við víði og aspir. Þessi 2 keppast um efsta sætið.
 |
Jarðarberjaplöntur í miklum vexti.
|
Jarðarberin eru í þvílíkum vexti, enda væsir ekki um þau þarna, gróðursett í gegnum dúk og njóta skýlis af plastlokunum sunnanmegin og af rifsi að norðan. Við borðuðum nokkur ber, nú vantar sól í nokkra daga til að berin roðni.
Ég klippti til risafuruna, hún er heldur aum að sjá, en það er nokkur vöxtur hjá henni samt. Gáfum henni túrbókalk og blákorn.
 |
| Fyrir snyrtingu |
 |
| Eftir snyrtingu |
Ég gróðursetti líka 6 klukkutoppa á svipaðar slóðir og venjulega,
vestan við akurinn og austan við afleggjarann. Þetta voru næstum þeir
síðustu, held að 2 séu eftir. Setti með þeim nokkra valmúa. Uppi á
hæðinni er venusvagninn í rólegheitum. Nú var N-átt og ekkert skjól er
úr þeirri átt. Setti nokkra pínulitla 'Ugga' og jörvavíði þar hjá.
No comments:
Post a Comment