Hitastig: 15°C og NA10. Alla vikuna hefur verið svipað veður, hlýtt, en allhvöss N-átt. Við höfum dundað ýmislegt, Halldór var að lakka vinnuborðið og smíða hliðarborð, svo hægt sé að vinna með mold á því. Ekkert hefur verið gróðursett, en ég tók græðlinga af jörvavíði og svo tók ég fullt af græðlingum hjá Sædísi, m.a. af mínum geislasópi.Bergur kom óvænt í heimsókn síðdegis einn daginn og sat hjá okkur í gróðurhúsinu í smástund.
Nýja sólberjabeðið lætur ekki mikið yfir sér núna, en við það eru bundnar miklar vonir.
Kartöflurnar voru að kafna í arfa, en ég fór yfir allt beðið og reitti allt í burtu. Á þessari mynd sést verkið þegar ég er hálfnuð.
Grenið vex sem aldrei fyrr, topparnir orðnir vel yfir 60 cm og enn að vaxa.

Stóra blómið, Aconitum ? er alveg um það bil að springa út, hvítir stórir blómknúppar, og spennan vex.

No comments:
Post a Comment