Frábært veður í dag, 15°C og skýjað að mestu. Síðustu viku var úrkoman 7mm, en um það leyti sem við vorum að fara heim í dag kom skýfall og aðrir 7mm féllu á um það bil 30 mín. Ennþá er hlýtt og mjög hægur vindur.
Í dag vann Halldór í skjólgirðingum. Það hefur eiginlega ekki verið þörf á þeim í sumar, enda hefur verið mjög lygnt. Við ætlum að reyna að koma upp skjóli fyrir veturinn og láta það standa uppi í allan vetur til þess að taka skafrenninginn af öspunum. Ég fór hins vegar í verkefni sem hefur verið lengi í undirbúningi, eða sólberjabeð í beði 2. Efstu 2 beðin hafa reynst illa í ræktun, bæði er mikið illgresi sem erfitt er að ráða við, og ef það rignir mikið verður þarna blautur pollur. Í beð nr. 1 ætla ég að setja rabbarbara í haust þegar ég skipti hnausunum. Sólberin voru gróðursett í gegnum dúk. Áður keyrði ég hrossaskít í beðið og stakk það upp með gaffli áður en Halldór tætti. Setti svolítið meiri skít í dag og gróðursetti hverja plöntu með áburði, blöndu af blákorni og túrbókalki.
Við gengum svolítið um svæðið í gær. Birkifræið sem við sáðum um árið er farið að spíra á nokkrum stöðum og aspargræðlingarnir eru farnir að sjást upp úr grasinu í bakkanum neðan við lækinn. Mér til mikillar ánægju fann ég aftur blágresið sem ég sá fyrst í fyrra. Blómgun en nærri lokið, myndin sýnir það ekki eins og það var fallegast.
Og í kerinu inni í gróðurhúsinu vaxa baunirnar vel en sætu kartöflurnar eru heldur daprar. Var búin að lesa að þetta væru stórglæsilegar plöntur.


No comments:
Post a Comment