Hitabylgja, logn, 16-20°C og steikjandi sól. Þannig hafa 3 síðustu dagar verið. Við gróðursettum 7 gullregn í svæðið austan við akurinn og annars höfum við sett gróðurstetningar á hold í hitanum. Heiðar, Klara og Vaka voru hér í 2 daga, svo ekki var gert mjög mikið. Jarðarberin eru farin að roðna, Vaka var mjög ánægð með þau sem hún fékk og líka eina gulrót sem fannst.
Í dag vökvaði ég allt í körmunum mjög vel og henti dauðum plöntum. Brjálaður vöxtur í öllu.
Er að leggja af stað til Frakklands, meira eftir viku.
No comments:
Post a Comment