Monday, July 25, 2016

Mánudagur 25. júlí 2016

Skýjað, logn og 15°C. Frá því síðdegis í gær var úrkoman 20mm. Við fórum niðureftir síðdegis og stuttu síðar byrjaði að rigna aftur, áður en við fórum var úrkoman orðin 6mm. Loftið var ótrúlega hreint og góð lykt úti eftir rigninguna og mjög sérstakt að vera úti í logni og svona mikilli rigningu. Við gróðursettum 1 fagursýrenu í reitinn við skjólgirðinguna austan við vinnusvæðið. Svo setti ég niður 5 meyjarrósir í framan við gráelrið og steininn, þær eiga að sjást frá veginum. Því miður bauð veður ekki upp á myndatöku. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive