Thursday, September 8, 2016

Fimmtudagur 8. september 2016

Tók upp kartöflur í gær og fór með í mötuneyti MB. Þetta eru premium kartöflur, en ég keypti þær sem gullauga. Það voru talsverð vonbrigði að undir hverju grasi voru 3-4 kartöflur. Litlar efst í beðinu, en stærri neðar, en ekki fleiri. Ég þurfti að stinga upp 1/3 af beðinu til að ná í 5 kg.
Við eigum eftir að taka upp rauðar í kerjunum og úti á akri og líka eitthvað af háreki, en þær hafa reynst vel.
Við skruppum í Kjarrás um síðustu helgi og dáðumst að framvindu gróðurs þar.
2016
2003


2016


Blæaspirnar hafa heldur betur braggast, hér er Halldór á milli þeirra. 
Blæaspirnar skömmu eftir gróðursetningu árið 2003. 


No comments:

Post a Comment

Blog Archive