Sunday, September 4, 2016

Sunnudagur 4. september 2016

Blíða í dag, 14°C, hæg V-átt. Halldór er enn að styrkja húsið, og ekki er ráðlegt að gróðursetja mikið í þessum þurrkum. Ég stútaði villijarðarberjunum, þau voru  búin að fylla kerið enn einu sinni. Nú tók ég þau öll og megnið af moldinni og dreifði út í móa, á 3 staði. 2 í heimagarðinum, annar hluti nálægt  venusvagni og í skjóli við greni. Þessar plöntur klippti ég niður. Hinn helmingurinn fór nær rósum í vesturhlíðinni. Þriðji hlutinn austan við akurinn, þangað fór slatti í vor og dafnar mjög vel.  Þá endurnýjaði ég moldina í kerinu, hluti var notuð kartöflumold, hluti ný mold (súr) og hluti molta. Setti ekki mjög mikið í kerið, en yfir fór plastdúkur, jarðarberjadúkur og ég valdi 25 plöntur til að gróðursetja þar. Klippti þær vel niður eins og glímuna sem er úti á akri.
Þá blandaði ég mold (ný mold, kartöflumold og molta) og setti í potta í stóra bakka, 4x24. Hvítlaukurinn bíður þess að verða settur í mold.  Klippti rætur og stöngla af laukunum. Núna þvoði ég mestu moldina af áður en ég þurrkaði þá, þeir líta óneitanlega betur út hreinir. Kíkti undir nokkur fallin kartöflugrös, það fer að verða tímabært að taka upp.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive