Sunday, September 18, 2016

Sunnudagur 18. september 2016

Frábært veður í dag, eins og í gær, sólskin, logn og 12°C. Við héldum áfram að gróðursetja. Í NA stykkið (hæðina) fóru 95 jörvavíðir úr fp35 bökkum. Þetta voru sumargræðlingar af græðlingunum frá því í vor, smáir, en með gott rótarkerfi.  Við settum líka 1 elri, 1 birki og 7 sjálfsáðar aspir.
Þá fórum við í brekkuna við lóðarmörkin (hjá Svenju og Gústa) og settum þar 3 birki, 5 reyniplöntur og 2 hafþyrni.
Ég tók svo upp kartöflur 'Hárek', fékk rúm 15 kg úr rúmlega hálflri röð. Nú hef ég tekið upp íslenskar rauðar (þær voru allt of litlar), premium (þær voru allt of stórar og fáar) og 'Hárek', sem voru margar og passlega stórar. - Alveg eins og hjá Gullbrá og björnunum.  En  við reynum að halda upp á útsæði af þessum kartöflum.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive