Enn er hiti í lofti, en í kvöld kom fyrsta haustlægðin og vindur fór upp í 30 m, svo við fórum að líta eftir. Vorum reyndar allan þriðjudaginn að ganga fá öllu lauslegu á vinnusvæðinu. Gróðurhúsið er tilbúið að öðru leyti en því að það vantar möl í botninn, hún er væntanleg alveg næstu daga.
Ég tók upp allar rauðu kartöflurnar, setti niður 5 kg og tók upp 10! Seldi þær allar. Rauðu kartöflurnar sem fóru í ker eru ónýtar, með einhverjum svepp. Enn er eftir úti á akri talsvert af premier?, það eru ca 3 undir hverju grasi og allt of stórar. Helst hægt að nota þær í mús, eða í ofnrétti eða súpu. Svo er hárekur, við reynum sennilega að halda einhverju eftir í útsæði, þær hafa reynst áætlega.
Í síðustu viku setti ég hvítlauksrif í litla potta, alls 96 stykki sem passar í 4 körfur og í vor fer þetta í 2 ker. Svo þurfti að tæma gróðurhúsið þar sem mölin er á leiðinni, ég fékk heilan helling af baunum, en sætu kartöflurnar voru langt frá því að vera tilbúnar. Reyndar var einhver ræfildómur í þeim alveg frá byrjun. Reyni að fá lífræna kartöflu hjá Rakel í vor. Við tókum upp restina af nothæfu hnúðkáli, um 20 kg. Restin er ónýt vegna þess að sniglarnir hafa gert ljót för í kálið. Nanna kom í heimsókn og við gengum um landið og hún dáðist að öllu, við tíndum ber, enn eru sæt og gómsæt sólber á runnunum og svo er mikið af góðum krækiberjum og aldrei hefur verið svona mikið af bláberjum, þau aukast ár frá ári.
No comments:
Post a Comment