Thursday, June 1, 2017

Fimmtudagur 1. júní 2017

13°C en heldur hryssingslegt veður, skúrir og allhvass vindur, einkum fyrri partinn.
Við gróðursettum 4 bakka af birki 'Emblu' frá Ikea (Tumastöðum) í viðbót, þeir fóru allir í svæði austan við akur og vinnusvæði, 1 bakki ofarlega í heimagarðinn, þar var lítið af birki fyrir. Þar settum við líka 7 sitkagreni í pottum.  Í svæðið austan og ofan við vinnusvæðið höfum við stungið óhemju magni af aspargræðlingum undanfarin ár, en ekki séð mikið af þeim hingað til. En núna eru þeir heldur betur að koma í ljós, margir orðnir sæmilega myndarlegir og þeir sem voru "dauðir" eru að koma aftur upp frá rót. Það er því mikið að gerast á þessu svæði. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive