Monday, June 26, 2017

Mánudagur 26. júní 2017

Svalt í dag, 12°C og A6, sólarlítið.  Það var mikið um að vera; Halldór skipti um boga í gróðurhúsinu og ég handlangaði. Þetta gekk vonum framar, það tókst að skipta um 5 boga og það er allt annað að sjá húsið núna. Það er samt mikið eftir, að festa bogana við alla bitana. Svo er hugmyndin að láta rétta gömlu bogana og nota þá til styrktar.
Þarna liggja gömlu og beygluðu bogarnir.
Á milli þess sem ég handlangaði náði ég að potta 20 hvítlauka 'Estisk rød'. Þeir eru eitthvað vesældarlegir í bakkanum hjá mér, en fræin hafa vaxið og náð að mynda pínulitla lauka. Nú læt ég hina vera í friði og athuga hvernig þeir spjara sig.
26. júní

Við borðum núna gulrætur á hverjum degi. Þær eru ekki stórar, en mjög góðar og það er ansi þröngt um þær, svo það er bara betra að grisja.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive