Wednesday, June 28, 2017

Miðvikudagur 28. júní 2017

Rigning í nótt og fyrri partinn, sólskin, logn og hiti siðdegis.
Halldór kláraði fyrri hluta viðgerða á gróðurhúsi og byrjaði strax á skjólgirðingunni. Ég setti dúk undir rauðblaðarósirnar, það tókst ekki mjög vel, en skánaði þegar ég huldi dúkinn að mestu með grjóti og möl.
Reynitrén eru ótrúlega flott og ruðningurinn lítur vel út, grinverkið sést varla.


Á akrinum leiðist illgresinu ekki rakatíðin, byrjaði aðeins að undirbúa stækkun jarðarberjabeðin.
Á heimleiðinni leit ég aðeins á eyrarrósina við hliðið. Hún skríður hratt um svæðið og ég reitti smávegis af lúpínu frá, en fallegustu brúskarnir eru samt undir lúpínunni.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive