Thursday, June 8, 2017

Fimmtudagur 8. júní 2017

Fremur kalt hefur verið í veðri undanfarna daga, en þurrt. Í dag var 8°C og NA-SA 8-12 m.
Það voru margir gestir hjá okkur um og eftir síðustu helgi, Rakel og dætur, Ingibjörg og Lára, og svo komu Heiðar, Klara og Vaka.  Það varð ekki mikill tími til að vinna, en Halldór hefur unnið ötullega í skjólgirðingunni og ég hjálpaði pínulítið til. Nú eru staurarnir komnir niður.



Gróðurinn er flottur.
Bergreynir að byrja að blómstra. 

Hélurifsið gefst ekki upp, heldur dreifir sér vel undir öspunum, þrátt fyrir mikinn grasvöxt.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive