Monday, June 12, 2017

Mánudagur 12. júní 2017

Ennþá sólskin og hiti, minni vindur en undanfarna daga og hlýtt þegar leið á daginn. Í kvöld var 12°C hiti í Hafnargerði og algjört logn, dásamlegt kvöld.
Vökvaði í morgun úti og í kvöld inni. Gróðursetti í 3 ker. Þá er komið brokkolí í 2 ker, hnúðkál í eitt og rauðrófur í eitt. Þær síðastnefndu hafa aldrei litið eins vel út eins og núna, stórar og flottar plöntur.
Heggurinn í fullum blóma. Þessir verða gróðursettir seinna í sumar á einhvern góðan stað.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive