Ágætt veður, 12°C og að mestu þurrt. S7.
Gróðursetti nokkrar plöntur í bakkan vestan meginn við akurinn. Þar er svæði sem er að verða mjög gróið og fallegt. Þar eru nokkur birki sem eru búin að vera þarna í nokkur ár. Þau eru beinvaxin og glæsileg. Eitt þeirra hallar aðeins til vesturs og nú setti ég 4 minni í hálfhring utan um það, þá hætti ég etv. að horfa á hallann. Svo setti ég 7 glæsitoppa, 1 álm og 5 heggi í þetta svæði. Heggurinn var í stórum pottum og orðinn mjög flottur, hann blómstraði heilmikið í vor. 1 blæösp fór niður á NV svæðið, uppi á bakkanum. Svo gróðursetti ég 3 stikilsber í brekkuna ofan við hindber og skammt frá blárifsi. Þangað fóru líka 2 silfurreynitré.
Tók eftir því að þó ringt hafi lítilsháttar voru mörg tré orðin mjög þurr. Skvetti vatni á allt, þrestirnir létu öllum illum látum á meðan og ég sleppti "þeirra" hólfi, en þar eru aðallega plöntur sem þola einhvern þurrk.
Pottaði birki sem ég sáði í vor. Það spíraði ekki mjög mikið, fékk rétt rúmlega 100 plöntur. En hins vegar er birki að finna hér og þar í kerjum og pottum, líklegast er okkar eigið fræ farið að fjúka hingað og þangað og sá sér. Sé líka sjálfsáð birki hér og þar um móann.
Halldór hóf vinnu við skjólgirðinguna, staurarnir voru komnir, nú byrjaði hann á klæðningunni.
Thursday, June 29, 2017
Fimmtudagur 29. júní 2017
Labels:
álmur,
birki,
blæösp,
framkvæmdir,
glæsitoppur,
gróðursetningar,
heggur,
priklun,
silfurreynir,
stikilsber
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Blog Archive
-
▼
2017
(62)
-
▼
June
(13)
- Föstudagur 30. júní 2017
- Fimmtudagur 29. júní 2017
- Miðvikudagur 28. júní 2017
- Þriðjudagur 27. júní 2017
- Mánudagur 26. júní 2017
- Sunnudagur 25. júní 2017
- Mánudagur 19. júní 2017
- Laugardagur 17. júní 2017
- Föstudagur 16. júní 2017
- Mánudagur 12. júní 2017
- Sunnudagur 11. júní 2017 - Sjómannadagurinn
- Fimmtudagur 8. júní 2017
- Fimmtudagur 1. júní 2017
-
▼
June
(13)

No comments:
Post a Comment