Friday, April 20, 2018

Föstudagur 20. apríl 2018

Fínt veður í dag, sólarlítið, en hlýtt og næstum logn. Smá rignignarskúr síðdegis þegar við komumst í Hafnaragerði.
Ég var hjá Sædísi í dag og við fórum eina umferð til at tína lambaklukku úr fjölæringum. Svo sáði ég fyrstu matjurtunum, rauðrófum (3 sortir), hnúðkáli og brokkolí.
Fór svo í Hafnargerði og sáði nokkrum trjátegundum, fræ frá GÍ og frá trjáklúbbnum. Þetta eru fáein fræ af hverri tegund, setti þau í litla potta og vökvaði vel. Læt þau vera inni meðan pláss er, en svo fara pottarnir út í karm.
Tegundi:
Alnus hirsuta - hæruölur (GÍ)
Viburnum edule - bersarunni (GÍ)
Viburnum lantana - lambarunni (GÍ)
Viburnum glomeratum - geislarunni (GÍ)
Viburnum opulus - úlfaber (GÍ)
Viburnum cassinoides (Tkl.)
Nothofagus antarctica (Tkl.)
Schisandra chinensis  (Tkl.)

No comments:

Post a Comment

Blog Archive