Sunday, April 15, 2018
Sunnudagur 16. apríl 2018
Það var ágætt veður alla helgina, 7-9°C og sól með köflum, hægur vindur. Lára og Ingibjörg voru hjá okkur og líka hvolpurinn Kolur, svo það var nóg að gera að passa. Okkur tókst samt að setja blikk á þak hænsnahússins og stóran hluta austur- og vesturveggs. Svo settum við 3 kartöflur í ker inni, búin að forrækta þær í pottum heima. Lét á það reyna, því við viljum endilega halda við þessu útsæði af rauðum háreki, það eru bragðgóðar kartöflur sem hægt er að uppskera snemma. Sáði líka birki í einn bakka, reyniviður og hlíðaramall hafa spírað vel og eru bráðum tilbúnir til að prikla. Reyndar kominn einn bakki af hliðaramal.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment