Sunday, April 22, 2018

Sunnudagur 22. apríl 2018

Nokkuð kalt, eða 4-5°C framan af degi, ágætlega hlýtt meðan sólin skein. Hæg NA átt.
Við hittum Lars í gær í tilefni af afmælinu hans og hann færði okkur 4 allstór rótarskot af gráelri. Þau settum við niður í heimagarðinn, ekki langt frá gráelrinu sem við fengum í Ræktunarstöðinni fyrir 10 árum. Við héldum að það hefði drepist, en það er bara mjög flott ennþá.
Við komum við í skógrækt Skilmannahrepps við afleggjarann að Akranesi og klipptum græðlinga af flottum öspum, settum 95 græðlinga niður í dag, í SA stykkið, við girðinguna og svo á hæðina sunnan við lækinn. Þar höfum við sett fjölmarga græðlinga á liðnum árum, nú sjást talsvert margir þeirra, en þeir hverfa þegar grasið grænkar. Stakk að lokum 15 græðlingum í fp15 og loðvíði 'Ugga' í 2pf40.
Sáði birki i einn bakka, ég kalla það birki 'R' (stóra tréð í ruðningnum) til aðgreiningar frá birki 'Lækur', fræ af fallega birkinu við lækinn, en því var sáð fyrir rúmri viku.

Inni í gróðurhúsinu eru gulrætur farnar að spíra af krafti. Ilmreynir og hlíðaramall tóku strax við sér þegar þeim var priklað í fp 40 og kartöflurnar eru hinar ánægðustu.

Akryldúkur breiddur yfir allt þetta, það getur alltaf komið næturfrost.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive