Gott veður, hægur vindur og sólskin mestan hluta dagsins. Hiti um 6°C.
Fór í Hafnargerði eftir vikudvöl í Noregi (með nemendur). Allt lítur vel út og gróður er allur að fara af stað. Sá fyrstu vetrarblómin og lóan er komin til okkar.
Halldór vann í að smíða lok á karma, en ég gróðursetti 16 rifs í röð úti á akri, með góðum slatta af sveppamassa.
Svo var hökkuð mold í 2 bala, það styttist í grænmetisprikl.
No comments:
Post a Comment