Tuesday, April 17, 2018

Þriðjudagur 17. apríl 2018

SA8, 7°C og rigning. Heldur hráslagalegt í sveitinni, en í gær var fínt veður og sólskin. Þá setti ég mold í nokkra fp40 bakka og priklaði ilmreyni í 5 bakka og hlíðaramall fór í samtals 5.
Pínulitlar reyniplöntur í vinnslu. 



Halldór stakk 30 aspargræðlingum, í gær klipptum við og stungum 50 græðlingum af jörvavíði 'Kólga', við erum enn að þétta röðina utan við skjólgirðinguna, austan við akurinn. Skjólgirðingin þar er orðin léleg, brettin eru orðin fúin og mörg hafa brotnað í vetur.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive