Við erum með hund í pössun fyrir Rakel, hann Kol, sem er ca 10 vikna gamall íslenskur hvolpur. Ingibjörg kom að hjálpa til um helgina, og kemur líklegast aftur um næstu helgi.
Hérna eru þau að leika sér í sveitinni, það var mjög gott veður og gaman að vera úti. Í dag vorum við að vinna í hænsnakofanum og Kolur var ekki bundinn, en hann fylgdi okkur vel.
Leitaði aðeins að páskaliljum þær eru farnar að gægjast upp úr jörðinni. Gróðurinn er varla farinn að lifna, aðeins skín samt í brumin, en nú er ekki mikil hætta á vorkali.
Mynd úr gámnum, Halldór er að vinna í því að útvega alls konar teikningar til þess að við getum tekið inn rafmagn í vor. Bjarni Þór ætlar að teikna fyrir okkur.



No comments:
Post a Comment