Rólegur dagur, enn er svalt í veðri. Var hjá Sædísi fram til kl. 4, þá skruppum við í 2 tíma í Hafnargerði. Sólin skein um stund og það var algjört logn og þess vegna hlýtt, en lofthiti er ekki nem 7°C.
Ég klippti ofan af reinfanginu, það vex með miklum ágætum hjá okkur. Tók fleiri myndir af páskaliljunum, mér finnst þær aldrei koma nógu vel út á myndunum.
Reitti svo illgresi úr einu keri af gulrótum og setti rauðrófur í eitt ker. Svo er bara að njóta lífsins. Fuglalífið verður fjörugra með hverju árinu. Við fundum hreiður brandandarinnar undir gámi, maríuerlan er með hreiður í hænsnahúsinu (í varpkassanum) og þrestir í grenitrjám hér og þar.
Setti úrkomumælinn út í fyrsta sinn á þessu vori, held að það hafi nánast ekkert ringt í dag.
No comments:
Post a Comment