Thursday, May 30, 2019

Fimmtudagur 30. maí 2019 - Uppstigningardagur

Fínt veður í dag, sólskin og hæg NV átt.
Kalt er á nóttunni núna, kaldasta nóttin var 0.0°C en í nótt fór hitinn í 1,7°C. Vonandi er mesti kuldinn yfirstaðinn.  Það hefur alla vikuna verið sólskin og allhvöss N-átt á daginn og kaldar nætur. Lítur þannig út áfram. Nú fer talsverður tími í að vökva á hverjum degi, en það er ekki neitt svakalegt magn í körumunum, svo það er yfirstíganlegt
Við höfum haldið áfram að tæta akurinn, í gær ákváðum við að nóg væri komið. Halldór gerði götur í dag, svo nú má setja kartöflurnar niður og svo matjurtinar.
Við byrjuðum aðeins að taka til vestan við akurinn, þar lá spítnarusl og netadræsur, sem áður voru notaðar til að fergja akryldúka. Tæmdi úr keri með sandi, því þarf svo að henda. Netin voru illa gróin niður. Á endanum sótti Halldór bílinn og dró þau upp.
Við settum niður 2 reynitré og 4 stór rifs sem Bjarni Þór var að taka upp úr sínum garði. Óvíst hvort þau lifa.
Hér er horft frá veginum í átt að akrinum, nú er að myndast skógur að vestanverðu líka.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive