Sunday, May 19, 2019

Sunnudagur 19. maí 2019

Gott veður, betra en spáð hafði verið.
Sun 19.05
kl. 13:00
Norðan 2 m/sm/s  /  7 m/s11,3 °C14,2 °C73 %
Við fórum nokkuð snemma af stað, eða um kl. 10 og vorum langt fram eftir degi. Við fórum í Þöll í gær og keyptum 5 fp35 bakka af sitkagreni og 1 fp35 af ryðelri, Alnus rubra. 
Nú erum við búin að gróðursetja 3 bakka af greni og 12 ryðelri. Byrjuðum svo að undirbúa að setja kartöflur í ker. Það hefur verið hlýtt undanfarnar vikur og gróðurinn er mjög langt kominn. Einstöku plöntur fóru illa í næturfrosti fyrir viku, en flest hefst vel við. Við gróðursettum greni og reynitré (alls 3 fp40 bakka) uppi á bakkanum, vestan við lækinn. Þar höfum við undanfarin ár stungið niður miklu magni af græðlingum, og núna er farin að sjást alvöru árangur.  
Páskaliljurnar eru fallegar, þær eru líka að verða að breiðu. 


No comments:

Post a Comment

Blog Archive