Fínt veður í dag. Undanfarna daga hefur verið kalt en sólríkt, næturfrost. S.l. nótt fór frost í -3° í gróðurhúsinu. Allur gróður, bæði úti og inni er komin langt með laufgun, en engar skemmdir var að sjá.
Við gróðursettum bakkaplöntur: 2 bakka af villiplöntum sem fuglar sáðu í kerin í fyrra. Í 2 bökkum, fp35 var mest af sólberjum, 15 reynitré og hugsanlega eitthvað annað. Settum 20 birki, 55 sólber og 15 reyni á sléttuna þar sem ég setti heilmikið af furum og ýmsum víði í fyrra, áður voru þangað komnar nokkrar aspir. Flest af því var lifandi. Settum líka 50 birki ofarlega í heimagarðinn. Þar er jarðvegur afar grýttur og blautur, en smám saman er svæðið að koma til. Þetta er ofan við páskaliljurnar, þar var bara urð þegar ég byrjaði að setja þær niður.
Við eigum núna talsvert mikið af alls konar bakkaplöntur sem gróðursetja má smám saman í sumar.

No comments:
Post a Comment