| Sun 26.05 kl. 16:00 | 7 m/s / 10 m/s | 13,7 °C | 23 °C | 47 % |
Byrjuðum svo aðeins að merkja fyrir stígum og nýjum vegi. Halldór fór með orfið og sló þar sem stígur á að vera í NV stykki. Orfið er svo öflugt að það er jafnvel hægt að slá þúfur með því.
Við höfum ekki gróðursett í nokkra daga, enda er alveg þurrt núna. Settum samt niður eina plöntu á tjaldstæðinu, það er fyrsta rauða birkið sem við plöntum út. Þar var áður logalauf, það virðist dautt eftir veturinn svo við fjarlægðum það. Við hliðina er komið efnilegt rótarskot af blæöspinni.
No comments:
Post a Comment