Tuesday, May 14, 2019

Þriðjudagur 15. maí 2019

Hlýtt og gott veður, en svolítið hvasst síðdegis. Sól með köflum.
Þri 14.05
kl. 16:00
Aust-suð-austan 9 m/s10 m/s  /  20 m/s14,6 °C18,7 °C59 %
Við fórum og merktum fyrir vegarslóða sem á að leggja uppi á sléttunni. Davíð gröfumaður kemur og græjar það fyrir okkur innan skamms. Þá verður hægt að keyra inn á svæðið með plöntur, sveppamassa og áhöld.
Þarna fundum við allmargar birkiplöntur, við teljum að þær séu að koma upp af fræði sem við sáðum þarna fyrir nokkrum árum og eru loksins farnar að sjást. Líka ein stök fura.
Priklaði í gróðurhúsinu Tilia tomentosa (5 stykki) og Acer negundo (17 stykki). Vökvaði vel yfir matjurtirnar og tók akryldúkinn af. Karktöflugrösin hafa aðeins látið á sjá í næturfrosti fyrir nokkrum dögum, en nú er ekkert næturfrost í kortunum, bara hlýindi.
Sáði fræi af "London plane" sem ég fann í Nantes um páskana. Las það reyndar að mjög líklega væri allt fræið ófrjótt. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive