Wednesday, May 22, 2019

Miðvikudagur 22. maí 2019

Frábært veður í dag, sól og hiti.
Mið 22.05
kl. 16:00
Norð-norð-austan 5 m/sm/s  /  8 m/s14,9 °C20,2 °C59 %
Við tókum til í kringum vinnusvæðið, skjólgirðingin er búin að gera sitt gagn og er farin að fúna niður. Allur gróður lítur svakalega vel út, smávegis frostskemmdir, en kasmírreynir virðist hafa farið mjög illa í næturfrostinu. Litlir svartir blettir á fleiri plöntum, en ekkert mikið.
Við gróðursettum 35 ryðelri. 12 fóru í svæði ofarlega í heimagarðinu, sitt hvoru megin vil lækinn. Þar er grunnur jarðvegur og plöntur hafa átt þar erfitt uppdráttar, en þó eru aspir, víðir og birki að koma til þar. 
Restin úr bakkanum fór í svæðið austan við veginn og vestan við akurinn. Þar hefur ýmislegt verið gróðursett undanfarin ár, en þar er líka grunnur jarðvegur og vöxtur er hægur. 
Ennþá norðar, meðfram veginum og nálægt lóðamörkum settum við ein 10 gráelri í fyrra, þau líta mjög vel út núna. Báðar þessar elritegundir eru frá Þöll. 
Gráelri, gróðursett sem bakkaaplanta 2018

Ryðelri, gróðursett sem bakkaplanta 2019.



No comments:

Post a Comment

Blog Archive