Ágætt veður 8-10°C, gola SA.
Fór í Hafnargerði með fullan bala af hrossaskít, setti hann neðst í eitt ker og fyllti vel af mold, þarna var fyrsta sáning gulróta. (Ker nr. 5). Akryldúkur yfir, spáð er kólnandi veðri.
Setti niður 20 lítil birki í lítið svæði neðan vegar. Tók græðlinga af keisaraösp, 2xfp35, hugsa það fyrir sama svæði.
Tók upp 25 sáðplöntur af sitkaelri, gróðursetti þær í "ruslastykkið".

No comments:
Post a Comment