Í dag var 12°C og mjög hægur vindur, örlitlar vindhviður. Skýjað og smáskúrir.
Við fórum og klipptum heilmikið, Halldór klippti græðlinga af öspum, en ég reyndi að snyrta nokkur tré, reynitré og fleira, bæði í ruðningi og á akri.
Gerði tilraun til þess að taka vetrargræðlinga af rauðu sýrenunni og gerði tilraun með nýja hitamottu, setti hana undir bakka með græðlingum af glæsitoppi frá því í fyrra. Þeir líta ekki allt of vel út. Hér er lokið undir bakkanum og kassinn laus ofan á, með smá loftun.
![]() |
| Hitamotta undir glæsitoppi. |
![]() |
| Sýrena, rauð, vetrargræðlingar. |


No comments:
Post a Comment