Monday, April 10, 2023

Mánudagur 10. apríl 2023 - 2. páskadagur

 Frábært veður í dag, sól mestan hluta dagsins, algjört logn, 12°C. 

Við vorum alllengi í Hafnargerði í dag. Kurluðum talsvert af greinum og afklippum. Kurlið fór beint umhverfis tré í nýja trjásafninu (neðri hluta akursins) og mest hjá eikum og logalaufi. Gætum notað tonn af kurli. 




Við reyndum að stinga græðlingum og ég reyndi að gera holur fyrir greni, en of fljótt er komið niður á frost. 

Við fengum heimsókn, það kom fólk sem á bústað í Hafnarskógi. Björg, eigandi Spakmannsspjara, við gleymdum að fá nafn eiginmannsins. Gáfum þeim eitt reynitré. 


No comments:

Post a Comment

Blog Archive