Frábært veður í dag. 12°C og sól mestan part dagsins.
Það var vinnudagur á Mógilsá og þar var ég frá 11-13. Gróðurhúsið er að komast í mjög fínt lag, Búið er að setja dúk á mestan hluta gólfsins og koma því til skila að ganga þurfi vel um. Plöntur klúbbsins eru líka snyrtilegri en áður, svæði klúbbsins var dúklagt í fyrra og lítur strax betur út. Gluggar voru þvegnir í dag og pottum raðað og rusli hent.
Svo lá leiðin beint í Hafnargerði, þar var sem sagt sól og blíða. Fyrsta kaffið drukkið á pallinum.
Nýi formaðurinn, hann Hjörtur kom færandi hendi og gaf plöntur á báða bóga. Ég fékk alpareyni (20 st.), silfurreyni, rúmlega 30 stykki, og strandreyni, rífl. 10 stk (smáar plöntur). Svo fékk ég ca 25 garðahlyni, þeir voru stórir og flottir. Og loks áskotnaðist mér 1 Sorbus americana. Líka fingurbjargarblóm og burkni. Þetta er allt komið í potta í gróðurhúsinu, vonandi verður þeim ekki mikið um.
Að lokum áskotnaðist mér græðlingar af blóðhegg, stakk í 1fp 40 bakka. Sýrenan sem ég stakk um daginn er að byrja að lifna við.
Úti voru 2 sáðbakkar undir gleri, tók þá inn. Annar var ilmreynir og hinn skrautreynir. Nú mega þeir fara að spíra.
Endaði daginn á því að stinga 200 aspargræðlingum í lúpínubreiðu uppi á sléttu. Það er alveg á mörkunum að hægt sé að stinga í grasbakkann ennþá vegna frostsins, en það styttist nú í að það verði hægt.

No comments:
Post a Comment