Frábært veður, logn og sólskin. Næturfrost hefur verið núna í nokkra daga og verður eitthvað áfram.
Í gær fór ég í heimsókn í Fornastekk til Ástu Möller og tók græðlinga af alaskaösp ´Hauki´, 2fp35 bakkar. Þeim er ætlaður staður í grasbakkanum neðan við hliðið. Þar eru nokkir frá því fyrir 2 árum sem eru mjög flottir, en græðlingar sem við stungum beint í jörð eru enn varla farnir af stað.
Haukur er glæsilegur klónn, afar breiður og fallega vaxinn. Svona er hann í vetrarbúningi.
Við Halldór fórum með 130 aspargræðlinga og stungum þeim í lúpínubreiðuna, skammt frá þeim stað þar sem ég stakk niður 200 fyrr í vor. Í gær stungum við 60 græðlingum í bakkann við lækinn, þar sem við stingum endalaust og lítið er að frétta. Þó eru allmörg tré komin vel á annan meter og ná nú vel upp úr grasinu.
Ég klippti greinar fyrir Sædísi af rifsi, sólberjum og Færeyjarifsi. Fékk hjá henni spergilkál og hvítkál, dugði í 2 bakka. Meira hefði bara valdið vandræðum. En þetta er hæfilegur skammtur til að setja í ker.
Gróðursetti 4 aspir vestan við skúrinn og 2 gljávíði sem voru í pottum, man ekki síðan hvenær.
Í gróðurhúsinu er bláa plóman nú alsett blómum. Engar býflugur sjást á ferð svo ég tek það hlutverk að mér næstu daga.



No comments:
Post a Comment