Friday, August 15, 2014
Föstudagur 15. ágúst 2014
Hellirigning í dag eftir nærri 2 þurrar vikur. Hiti hefur verið 9-12°C og frekar hvasst alla vega suma dagana. Það hefur ekki verið unnið mikið í garðyrkju, en Halldór náði að tæta 2x neðri hluta akursins, sem var að hverfa í fífla og grasi. Hann kláraði líka að mála þakið í 2. sinn, svo nú lítur þetta vel út og ætti ekki að leka á næstunni. Ég fór með nokkra poka af gulrótum í Ljómalind og þær hurfu hratt, en þær eru of litlar, tek aftur upp eftir viku. Fór líka með 4 hvítlauka, en aðeins einn seldist. Ég verð líka að taka til baka graslauka, villijarðarber og rifsrunna sem ekki hafa selst.
Labels:
gulrætur,
hvítlaukur,
tæting,
þakviðgerð
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment