Saturday, August 23, 2014

Laugardagur 23. ágúst 2014

Ágætt veður í dag, nánast logn og 10°C, en sólarlaust. Í gær, föstudag, var hins vegar afskaplega hlýtt, hitinn fór áreiðanlega í 18°C hjá okkur og það var logn og sól allan daginn.
  Ég fór og skoðaði hnúðkálið í gær og sá eitt sem hugsanlega er að nálgast 100g, en flest hinna eru nær 10g.  Líklegast þurfa þau 3-4 vikur í viðbót, svo ég tók akryldúk síðan í fyrra og breiddi yfir 4 beð, nr. 5-8. Dúkurinn var rifinn á nokkrum stöðum, ég saumaði verstu rifurnar saman, en reyndi svo að fergja þannig að rifur væru undir dúk. Það verður að hafa það ef dúkurinn fer.
  Í dag var Halldór með mér og við gróðursettum 13 reynitré. 10 þeirra voru í beði á akrinum en hin    voru í pottum. Þau fóru öll í heimagarðinn, neðan við önnur tré þar. Þau eiga að fylla upp þar sem skjólið er gisið, en verða líka eins og frontur þegar þau vaxa upp.  Við tókum líka 7 aspir af akrinum og gróðursettum austan við akurinn og vinnusvæðið, þar er komið svolítið af greni, en ekki nóg til þess að leysa brettaskjólbrettin af hólmi.
  Á heimleiðinni sáum við rjúpuhópinn okkar, hann er þá á sínum stað, en þær hafa ekki látið sjá sig fyrr í sumar.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive