Wednesday, August 27, 2014

Miðvikudagur 27. ágúst 2014

Það var hvasst fyrri hluta dagsins en lægði síðdegis. Hiti 15°C og nánast logn þangað til við fórum heim kl. 21. Við þurftum að laga akryldúkinn aðeins, hann tollir að mestu leyti á samt. Svo tætti Halldór bletti á akrinum þar sem við höfðum fjarlægt trjáplöntur og allt var á kafi í grasi. Hann tætti líka upp svæðið þar sem jarðarberjabeðið á að vera, ég var búin að bæta þar  mold og skít. Þetta beð verður tilbúið og fínt næsta vor. Þá mokaði ég nokkrar fötur af skít upp úr körmum og bar á nálægar trjáplöntur.
  Við tókum upp allan hvítlauk sem eftir var (nema í kerinu framan við gáminn) og bárum inn, enda spáð rigningu. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive