Rigning og rok, S8-12 m og 12°C. - Fæðingardagur Heiðars- og Klörudóttur.
Við drifum okkur í gróðursetningar uppi á sléttunni. Þar er nú komið töluvert magn af plöntum, en flestar eru þær afar litlar.
Í dag var gróðursett:
60 birki (lítil, en í pottum)
20 jörvavíðir - vel rættir græðlingar
25 viðjur, græðlingar í fp35
5 hélurifs, græðlingar úr fp35
3 klukkutoppar og 2 blárifs úr pottum = 115.
Jörvavíðirinn kom þannig til að 2 stórar greinar brotnuðu af einum sem hafði vaxið ótæpilega. Um miðjan júlí voru báðar greinarnar 50 cm og ekki farnar að tréna þegar stormur braut þær. Ég stakk þeim í frauðplastkassa með mold og sandi og þær mynduðu rætur eins og skot. Þær voru gróðursettar við hliðina á alaskalúpínu sem dreift var um einn eyðisandinn í fyrra og hefur dreift sér þar heilmikið. Enginn áburður eða skítur settur með, við ætlum að sjá hvort lúpínan getur fóstrað þessa dugnaðarforka. Allt hitt var gróðursett með skít, sveppamassa og svolitlum áburði. Birkið er frá því í fyrra, stærðin frá 10-30 cm, klukkutopparnir hafa verið í pottum í nokkur ár og nú þarf að koma þeim út. Nokkrir hafa staðið sig vel nálægt vinnusvæði og akri, og hafa borið blóm og ávöxt í sumar. Blárifsið lifir líka á mörgum stöðum, en ennþá er hægur vöxtur, nema í rifs beðinu, þar eru nokkrar plöntur komnar á gott ról og bera falleg ber núna.
Að lokum var restin af hvítlauknum frá Danmörku 'thermidrome' tekin upp og liggur nú til þessis inni í skúr. Stönglarnir voru orðnir morknir, sumir slitnuðu í sundur þegar togað var í þá. Sama má segja um allan hinn hvítlaukinn, næsta verkefni er að taka hann allan upp.
No comments:
Post a Comment