Sunday, August 31, 2014

Sunnudagur 31. ágúst 2014

Fyrsta haustlægðin gekk yfir í nótt og í morgun, vinstyrkur 17-20m og allt að 39 í hviðum. Hiti um 13°C. Við gengum frá flestu eins vel og við gátum, fergðum akryldúkinn betur og settum grjót í kerin. Tjaldið gleymdi ég að taka inn og það var horfið þegar að var komið. Akryldúkurinn að mestu farinn, en lá uppi við skjólgirðinguna norðanmegin. Við gengum niður í fjöru til að leita að tjaldinu. Það fannst ekki, en eitt ker lá þar ekki langt frá vitanum, líklega síðan í fyrravetur. Það var ekki mjög illa farið og Halldór fór yfir ána á bílum og sótti það.  Skammt þar frá lá líka stór dúkur sem vel gat verið úr plastgróðurhúsinu, á kafi í sandi, ég náði honum ekki upp.
Í gær var frábært veður, 15°C og sólskin mestan hluta dagsins. Það var mikið að gera hjá okkur og Ingibjörg var í heimsókn. Við fórum f.h. í Hafnargerði og tókum upp svolítið af gulrótum. Ég fór með 4 poka  laugardag og 3 í dag, um hádegi var 1 poki óseldur. Við Ingibjörg tíndum líka rifsber, hún fór með tæpan 1l til mömmu sinnar. Við vorum í tæpa 2 tíma hjá Sædísi og fórum svo saman á Kaupfélagshátíð, þá aftur í Hafnargerði þar sem við vorum við frágang þangað til tími var kominn á sundferð, tjaldið gleymist alveg.
 Á miðvikudaginn voru gróðursettar 75 plöntur á sléttunni, mest upp með girðingunni þar sem áður voru komnar viðjur og loðvíðir. Þetta voru 71 birki í viðbót og 5 klukkutoppar. 
Fyrsti blómknúppurinn á ætiþistli.

Blárifs með berjum.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive