Wednesday, August 6, 2014

Miðvikudagur 6. ágúst 2014

Fínasta veður í dag, allt að 18°C og sól framan af degi, hægur vindur og 15°C undir kvöld. Ein skúr í Hafnargerði en þurrt í Borgarnesi.
Halldór hélt áfram að gróðursetja upp á SA hlutann, ofan við lækinn. Hann setti niður 30 plöntur, viðju og loðvíði.
  Tók græðlinga af logalaufi (30) og af snækórónu (20) og setti í fötur með vikri og plastpoka yfir. Snækórónan heldur áfram að blómstra, hún er virkilega falleg og það er yndisleg lykt af henni.

Snækórónan í blóma.

 Svo tók ég til nokkur villijarðarber í viðbót, þau eru að seljast hjá Ljómalind.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive