Hlýtt og gott veður alla verslunarmannahelgina. Í dag: 13°C, logn, sólarlítið. Lára og María Anna voru hér í tvo daga og það var nóg að gera að annast þær. Við náðum samt að gróðursetja 9 loðvíði 'Ugga' í eyður í ruðinginn og 1 jörvavíði, og í dag fórum við með 140 loðvíði (frá Borg) og gróðursettum í SA hluta landsins. Þar hefur brekkuvíðir vaxið svolítið síðustu ár, einstaka körfuvíðir hefur vaxið talsvert í sumar og töluvert af loðvíði lítur vel út. Við vorum komin með tvöfalda röð upp með girðingunni, en nú settum við loðvíðinn í hópa, 5x20 þar fyrir innan. Þetta eru græðlingar frá því í vor og líta ekki allir nógu vel út. Þeir eru heldur langir, en allt eru það endagræðlingar. 'Uggi' sem fór í ruðninginn voru tveggja ára græðlingar í pottum.
Halldór mældi asparvöxtinn, nú eru hæstu aspirnar um það bil 3.5 metrar (mæliprikið er 3m) og vexti er ekki lokið enn. Blæöspin í ruðningnum er að vera afar falleg, beinvaxin og blaðfalleg og hún hefur greinilega vaxið vel frá því í fyrra eins og sést á þessum myndum.
 |
| 5. ágúst 2014 |
 |
| 6. október 2013 |
Berjasprettan ætlar að verða fín, krækiberin eru stór og gómsæt, jarðarberin úti í móa eru alveg að verða tilbúin og sama má segja um rifsið og sólberin, nú er erfitt að standast sólberjaklasana. Gulræturnar í keri eru flottar, en vaxa óþarflega þétt og grösin eru mjög há og erfitt að grisja innan úr.
Úti á akri höfum við farið nokkrar ferðir og tekið það sem við náum af krossfífli, en það er af nógu að taka. Ég náði að potta nokkra sólberjagræðlinga frá því í fyrra og líka græðlinga af baunatrénu. Við fórum heim til Eddu á Austurströnd og náðum í nokkra græðlinga af kóreukvisti sem er mjög fallegur hjá henni.
Þá sóttum við sitkagreni sem óx af okkar eigin fræi á Mógilsá.
No comments:
Post a Comment