Halldór kláraði að tæta akurinn og gera götur á miðvikudaginn og þá setti ég niður nokkrar plöntur og svo meira í dag. Allar rauðrófurnar eru komnar út, en mest er eftir af brokkólí og um helmingur af hnúðkálinu.
![]() |
| Koparreynir, nýpottaður með banana. |
Gróðursetti 2 stykki af balsamþin sem Sædís gaf mér fyrir löngu, en hafa verið vanræktar í pottum í langan tíma.
Í gróðurhúsinu spíraði Scisandra chinesis, frá Trjáklúbbnum. Þetta er einhvers konar vínviður, vafningplanta. Til hægri er koparreynirinn, glittir í brokkólí og örsmáar birkiplöntur.
![]() |
| Spírun |
![]() |
| Blómstrandi blóðheggur. |



No comments:
Post a Comment