Wednesday, June 27, 2018

Miðvikudagur 27. júní 2018

Nokkuð gott veður í dag, sólskin annað slagið og rigndi ekkert fyrr en eftir kvöldmat! Hiti 8-11°C.
N2m.
Í dag komu menn frá Rarik og lögðu rafmagn að vinnuskúrnum. Þeir voru að allan daginn, gerðu skurð í gegnum mýrina og að rafmagnsstaur þar og líka yfir til Svenju í næsta bústað. Það gæti því farið að styttast í að við fáum rafmagn inn.
Á meðan þeir unnu kláraði ég að prikla því birki sem var tilbúið.
Samtals: 3xfp70, 12 x fp35, 25xfp40 = 1790.
Það verður gaman að planta þessu út næsta vor.
Rafmagnsstrengurinn var lagður í gegnum skrautlundinn minn, en Haraldur gerði þetta mjög vel, hann lyfti steininumm og færði hann og komst þannig fram hjá öllum trjáplöntunum. Ég finn eitthvað til að setja þarna í miðjuna.

Hér var strengurinn lagður að skúrnum, þvert í gegnum skrautlundinn. 



No comments:

Post a Comment

Blog Archive