Gott veður, skýjað en nánast logn, síðdegisskúr. Hiti 10°C.
Það er rífandi gangur í vinnu við kerin. Við erum búin að moka í flest kerin. Hnúðkál í 2, rauðrófur í 6 (+Sædís), spergilkál í 3, jarðarber (Glíma) í 1.
Akurinn er enn of blautur til þess að hægt sé að tæta, en það ætti að gera gerst næstu daga.
Priklaði birki i 6 bakka, 2 fp35 og 4 fp40. Bara byrjunin, mikið er eftir.
Hlíðaramallinn blómstrar, fær að vera í keri amk. í eitt ár enn.
No comments:
Post a Comment