Monday, June 18, 2018

Mánudagur 18. júní 2018

Ágætt veður í dag, en frekar kalt. Hiti um 10°C og NA 10m.
Úrkoma var 8 mm í nótt, svo ekki var um það að ræða að tæta akurinn aftur í dag.  Skoðum málið á morgun. Í staðinn priklaði ég einn bakka af birki 'Bakki', þetta urðu 13 x fp40 bakkar. Hlíðaramall og reynitré sem ég priklaði í apríl rifna út, líka sýrenur sem ég pottaði fyrir stuttu.
Pottaði 15 ylli. Í fyrsta sinn eru 2 ylliplöntur að blómstra heilmikið í ár, flestar hafa drepist hjá mér, þær fáu sem lifa eru mjög lengi að ná sér á strik. Pottaði líka 3 mispla og 2 skriðmispla. Þeir sem ég setti út eru nær dauða en lífi, þessir fá að vaxa aðeins meira. Pottaði líka 2 reyniblöðkur sem Anna og Steinar gáfu okkur í fyrra. Mín reyniblaðka blómstraði í fyrra og mér sýnast 3 smáplöntur vera að vaxa upp við hlið móðurplöntunnar.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive