Monday, June 11, 2018

Mánudagur 11. júní 2018

Ágætt veður, hægur vindur og að mestu skýjað, 9°C.
Frí hjá Sædísi og ég fór og mokaði milli kerja og gróðursetti rauðrófur í 3 ker og spergilkál í 2. Meira á morgun. Setti fyrri sáninguna af spergilkáli út í karma og vökvaði hnúðkálið. Það er ljóst á litinn, eins og vanti áburð. Setti bæði örlítið blákorn og þunna upplausn af glæði. Tók akryldúkinn af körmunum, en setti lokin aftur á.
Vökvaði vel inni líka, það sem ég var að gróðursetja var orðið all þurrt, einkum rauðrófurnar sem voru í hvítum bökkum, en líka það sem var í litlum pottum.
Ekki er annað að sjá en rauðrófur sem fóru í ker fyrir nokkru vaxi ljómandi vel, líka gulrætur. Kartöflur eru loksins að koma upp.
Framan við bílastæðið, rauðblaðarós, birki og geislasópur.

Blóðrifs og sýrena.

Skjólbeltið við akurinn.

Austan við vinnusvæði, geislasópur og birki. 



Blóðrifs, bleikt. 

Einu blómin sem blómstra núna (fyrir utan fífla) eru páskaliljurnar.



No comments:

Post a Comment

Blog Archive