Tuesday, June 19, 2018

Þriðjudagur 19. júní 2018

Rigning: 5 mm síðasta sólarhring. Það hefur rignt eitthvað alla daga í maí og flesta daga í júní. Hitinn í dag var um 8° NV 8m. Sólarlaust.
Í dag og í gær var ég að fara yfir karmana, potta upp því sem ég vil hafa lengur í pottum, sortera og henda dauðu.
Gróðursetti svo á mel (gengt bílaplani við veginn) þar sem áður voru komna margar aspir. Þær voru lengi vel "taldar af", en hafa komið upp aftur. Nálægt þeim gróðursetti ég 35 furur,  Pinus banksiana sem voru í fp35. Allar ljótar en 21 lifandi. Svo 12 furur af óþekktum uppruna, þær voru í litlum pottum og hraustlegar, en stuttar.
Lét fylgja 3 gullregn og nokkrar víðiplöntur sem hafa sáð sér hér og þar og fengið að vaxa í pottum. Svo tók ég pott sem í var gleym-mér-ei, en þar leyndist líka lítil blæösp.
Blæösp, felumynd.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive