Thursday, May 19, 2022

Fimmtudagur 19. maí 2022

 Mjög gott veður, skúrir í morgun, en hlýnaði eftir því sem á daginn leið, sólskin og 17°C þegar ég fór heim um 19.30.

Gróðursetti eftirfarandi: 

1- Sitkareynir - Sorbus sitchensis   Fór í trjásafnið, gamla matjurtagarðinn. Eyða var þar sem ég gaf Barböru eitt blóðrifs. 

1- Sitkavíðir 'Óli' - Salix sitchensis Vestan við akurinn, á að standa þar til að gefa af sér græðlinga

1 -  Blæölur  -Alnus tenuifolia -  Austan við akurinn, þar sem eru laukar og gullregn, þar er líka ryðölur skammt frá, nú verður hægt að bera þá saman

1 -Dúntoppur -  Lonicera xylosteum - í trjásafnið, við jarðarberjakarma og stutt frá stórum glæsitoppi.

25 körfuvíðir fóru ofan í skurðinn, 8 hélurifs við eikur og logalauf. 



No comments:

Post a Comment

Blog Archive