Ágætt veður, sól með köflum, hægur vindur, hiti 7°C. Fórum ekkert niðureftir í vikunni, það hefur verið mjög kalt og blautt.
Í dag gróðursettum við 10 allstórar aspir 'Haukur', sem voru pottaðir í fyrra og uxu mjög vel. Þeir fóru í bakkann við afleggjarann. Þar var stungið græðlingum um leið og þessir voru settir í potta, og það er ólíkt meiri vöxtur í pottaplöntunum.
![]() |
| 'Haukur' á leið út. Mjög góður ársvöxtur síðasta sumar. |
Svo settum við niður 2 bakka af hélurifsi, alls 60 plöntur.
![]() |
| Svon lítur stærsta hélurifsið út. Settum 60 plöntur í viðbót undir alla asparlengjuna. |


No comments:
Post a Comment